Blóð frá bændum
Virka lyfjaefnið eCG er framleitt úr blóðplasma sem fengið er úr fylfullum hryssum á fjölda bændabýla sem halda hross.
Til að hefja þátttöku í blóðsöfnun byrjar bóndi á að setja sig í samband við fulltrúa Ísteka sem leiðbeinir honum með framhaldið. Meðal þess er að sækja um heimild til Matvælastofnunar (MAST) og fá fræðslu um forsendur blóðsöfnunar.
![](https://isteka.is/wp-content/uploads/2023/08/Merar-og-folold.jpg)
![](https://isteka.is/wp-content/uploads/2023/06/horse-close-up-1-e1686230567591.webp)
Bændurnir sjá um hryssurnar eins og annað búfé sitt árið um kring. Þær eru hafðar á góðu beitilandi og gefið eftir þörfum. Hryssunum er þannig unnt að sýna sitt eðlilega atferli.
Aðstaða nýtt í blóðsöfnun þarf að vera hönnuð þannig að hún geri blóðsöfnunarferlið þægilegt og öruggt fyrir hryssur og starfsfólk. Það þarf að vera meðvitað um mikilvægi yfirvegunar og réttra vinnubragða meðan á blóðtöku stendur, því hryssurnar eru rólegri þegar andrúmsloftið er friðsælt og afslappað.
Dýralæknar sjá um blóðtökuna og staðdeyfa áður en hún hefst. Dýralæknirinn gaumgæfir velferð og heilsu hverrar hryssu og tekur eingöngu úr heilbrigðum hryssum.